:: ..:Hjálmar:.. ::

Va fan gör du drenguuuuur !!
:: welcome to ..:Hjálmar:.. :: bloghome | e-mail | gestabok ::
[::..bloggarar..::]
:: Bylgja
:: Bambus
:: Gummi Steinars
:: Gunni Stef
:: Stjani Jo
:: Arnar P
:: Villi
:: Tabextra
[::..fotbolti..::]
:: Gautaborg
:: Gras
:: Boltinn
:: Keflavik
:: Geirfuglar
:: Hattarar
[::..djamm..::]
:: Undirheimar
:: Djammari
:: Djamm
[::..gamalt og gott..::]

:: mánudagur, júlí 21, 2003 ::

Já halló

Jæja nú er bara vika síðan að ég skrifaði síðast og það er nú ekki nógu gott. Það sem er helst í fréttum er nú ekki svo margt en það hefur þó ýmislegt gerst síðan ég skrifaði síðan. Byrjum á fótboltanum allavega þar sem við gerðum góða ferð til Stokkhólms og sigruðum 2-0 og hefndum við okkur því við töpuðum einmitt með sömu tölum hér á heimavellli ekki alls fyrir löngu. Gríðarlega mikilvægur sigur og nú var kallinn í liðinu og spilaði vinstri bak og stóð sig bara ágætlega. Nú er bara að vona að þjálfarinn sjái það að eigi að vera þarna en ekki upp í stúku og á bekknum !!! Eftir leikinn var að venju "stríð" á milli stuðningsmanna okkar og AIK þar sem þeir stilltu sér upp beggja vegna götunnar og töldu upp að þremur og svo krass, bang, búmm !!! Minnir helst á hóp af brjáluðum nautum sem vita ekkert hvað þau eiga að gera. Við fengum svo lögreglufylgd út úr borginni og það voru ófáar löngutangirnar sem við fengum að sjá þegar við keyrðum út úr borginni. Við vorum sem sagt ekki vinsælustu mennirnir þetta kvöldið hjá Stokkhólmurunum en vinsælli af okkar stuðningsmönnum að sjálfsögðu.
Um helgina var svo farið í svona mini-keppnisferð ekki langt hér frá þar sem við spiluðum einn leik og æfðum nokkrum sinnum ásamt öðrum uppákomum sem var svona fínt barasta þar sem fjölskyldur leikmanna voru með í för. Fórum í einhverja bátsferð þar sem mönnum gafst tækifæri á að hoppa í hafið og kæla sig aðeins, borðum ferskar rækjur sem við pilluðum sjálfir og það hef ég aldrei gert áður en ég vorkenni fólki virkilega sem vinnur við það að pilla rækjur. Ef þetta væri ekki svona gott hefði ég aldrei nennt þessu !!! Tveir félagar mínir fengu einnig þá skemmtilegu hugmynd að hoppa frá einni brúnni sem var nálægt hótelinu og hæðin var 14 metrar og það var ógeðslega fyndið að sjá þá í loftinu spriklandi eins og laxar. Ég tók því miður ekki þátt í leiknum því ég hef verið með kvef í þessum mikla hita og það er alveg furðulegt því þá á maður bara ekki að fá kvef !! En ég æfði í dag og var allt í lagi þannig að maður verður fit for fight í næsta leik vonandi sem er á fimmtudag.
Svona var nú þessi vikan með góðu veðri, mikilli sól, kvefi, brjáluðum stuðningsmönnum, góðum sigri og fínum mat.

Þangað til næst hafið það gott.
:: Hjalmar 7/21/2003 [+] :: ::
...
:: mánudagur, júlí 14, 2003 ::
Jamm og jæja !!

Hef fengið góðar viðtökur frá manninum sem ég tók viðtalið við og virðist hann bara nokkuð sáttur með þetta. Spurning hvort ég taki ekki viðtal við fleiri ?? Sem er já bara hið besta mál. Hér hefur ekki mikið gerst síðan ég skrifaði síðast. Fríið ógurlega sem voru fjórir dagar endaði á laugardaginn og hefur verið æft stíft síðan.
Gríðarlegur hiti hefur hafið innrás sína í landið og það var nú kominn tími til segi ég nú bara. Hér hefur verið óttarlega "leiðinlegt" veður það sem af er sumri, svona 18-22 gráður og skýjað og rigning. En nú hefur dæmið heldur betur snúist við og í dag var 30 stiga hiti og sól og það á víst að vera svona vikuna út og stóra spurningin er hvort maður eigi ekki eftir að bráðna hér. En ég kvarta að sjálfsögðu ekki og fer því hálfnakinn og sóla mig og sting mér í hafið og drepst að sjálfsögðu úr kulda þar ;) Við fórum nokkrir út við hafið og böðuðum okkur eins og svíar segja það. Íslendingurinn ætlaði heldur betur að sýna að hann væri engin skræfa enda vanur ísköldu vatni og allskonar veðráttu. Það tók ekki langan tíma áður en ég stakk mér í hafið og þvílíkur helvítis andskotans kuldi maður, var ekki lengi að synda í land aftur og láta sólina þurka mig ;) Í annað skiptið ætlaði ég nú að vera aðeins lengur útí en þegar ég ætlaði svona bara labba rólega útí þá gerðist náttúrulega það að ég rann á slorinu á steinunum og datt beint á rassgatið út í með miklum skell og viðstaddir sem sáu þetta sem voru svona 100 manns náttúrulega orguðu úr hlátri og byrjuðu að benda á mig eins og ég væri algjör aumingi. (þetta leit náttúrulega hrikalega aumingjalega út og ekkert skrýtið að menn hafi hlegið af mér) Ég hefði sennilega migið í mig úr hlátri ef þetta hefði komið fyrir einhvern annan ;)
Núna situr maður bara nettbrenndur og ber á sig after sun kremið vinsæla svo maður geti haldið áfram að sóla sig á morgun ;)

P.s hafið það gott í norðanáttinni þarna fyrir austan og vonandi hugið þið með "hlýjum" hug til mín því ég hugsa með "hlýjum" hug til ykkar brrrrrrrrrrrrrr.
:: Hjalmar 7/14/2003 [+] :: ::
...
:: fimmtudagur, júlí 10, 2003 ::
Góðan dag eða kvöld eða nótt

Ég sendi félaga mínum honum Gummó nokkrar spurningar með pósti og hér koma svör hans við þeim hér fyrir neðan.

Nú hefur þú oft verið kosinn kynþokkafyllsti karlmaður landsins hvernig höndlaru þá gífurlegu pressu ?? Er þetta ekki soldið pirrandi að vinna þetta svona ár eftir ár ??

Jú andskotinn hafi það maður þetta er alveg ótrúlegt helvíti maður er bara ekki látinn í friði og það eru ekki bara stelpurnar get ég sagt þér !! Það er svo sem ekkert mál að höndla pressuna en þegar maður er að fá blóm og nærbrækur og sona send heim til sín þá er þetta nú einum of mikið sko.

Nú hefur þú verið talinn mjög hress og skemmtilegur maður. Hvert er leyndarmálið eiginlega, hvað gerir maður til að vera svona skemmtilegur ??

Ja ég veit það eiginlega ekki. Ég hangi oft heima bara og er á netinu og fer mjög sjaldan út að skemmta mér og svo hef ég eignast marga og skemmtilega vini í gegnum frímerkjasöfnunina sem hefur gefið mér mikið gildi. Ég vil helst bara vera einn og sona fara í göngutúra æ ég veit eiginlega ekki.

Nú hefur golfið og fótboltinn átt hug þinn allan síðan já eiginlega þú fæddist en aðallega fótboltinn hvað kom til ??

Nei þetta er hinn mesti misskilningur !!! Mér hefur alltaf fundist fótboltinn hundleiðinlegur og ég byrjaði bara í honum þegar ég sá að ég átti mér enga framtíð í skákinni. Það var bara of erfitt að hugsa sona mikið þannig að ég ákvað að fara í eitthvað sem var ekki alveg sona erfitt. Ég er ekki að segja að ég sé heimskur en bara þú veist hvernig þetta er með skákina. Ég lærði aldrei manngangin almennilega og svo gleymdi alltaf að slá á klukkuna þegar ég var búinn að gera og féll því alltaf á tíma og tapaði. Golfið var bara svo skemmtilegt vegna þess að við félagarnir tókum alltaf bjór með okkur og spiluðum alltaf síðustu holuna naktir en ég get ekkert í golfi samt.

Nú hefur þú haldið eitt og annað partýið í gegnum tíðina þrátt fyrir að eiga ekki marga vini. Eru þetta róleg partý með frímerkjafélögunum eða einhverjum öðrum þá ???

Einhverra hluta vegna þá fara þessi partý út í algjört rugl ég veit ekki af hverju en mörg þeirra hafa verið algjör steypa. Oftast býð ég bara frímerkjafélögum mínum í partý en svo koma þessir brjálðu fótboltafélagar mínir og eyðileggja allt þannig að frímerkjafélagar mínir fara bara. Þetta er bara alveg óþolandi !!!!

Nú hefur þú búið á nokkrum stöðum á lífsleiðinni. Hver þeirra hefur haft mest áhrif á líf þitt hingað til ??

Ég myndi segja Egilsstaðir og Hafnarfjörður sennilega því þar var einn maður sem ég kynntist sem bara ruddist inn í líf mitt alveg hundleiðinlegur andskoti sem kom alltaf og horfði á fótbolta heima hjá mér og drakk bjór eins og andskotinn sjálfur. Þegar þetta var að verða of mikið þá bara fékk ég bara ógeð af honum og flutti til Hafnarfjarðar. En viti menn þá flytur þessi andskoti til Keflavíkur og kemst að því hvar ég bý í Hafnarfirði og er því aftur kominn inn í líf mitt og í þetta skipti varð það ennþá verra. Hann leiddi mig í ýmsar ógöngur sem ég hefði annars ekki lennt í hefði þessi maður ekki ruðst inn í líf mitt. Þess vegna eru þetta áhrifamestu staðir í mínu lífi í neikvæðri merkingu !!!

Hér koma svo stuttar spurningar þar sem valið er á milli tveggja hluta.

Bjór eða Brennivín ? Bæði en þó aðallega bjór
Fótbolti eða Golf ? Bæði en bara golf þegar við spilum naktir og með bjór
Egilsstaðir eða Hafnarfjörður ? Bæði jafn slæmt vegna truflunar í lífi mínu af algjörum fávita
1,25 kg lóð eða Thule í frystinum ? Bæði því það er jafn fyndið og sérstaklega þegar Rabbi fékk lóðið í andlitið í staðinn fyrir Thule
Brotinn eða óbrotinn gítar ? Brotinn því það er miklu fyndari saga !!!
Klósettpappír eða raksápa ? Hvorugt því það er alveg jafn erfitt að þrífa upp eftir hálfvita
Þunnur eða þreyttur ? Þunnur því maður verður ekki bara þreyttur eftir fyllerí :)

Ég vil þakka honum frábæra félaga mínum fyrir þetta viðtal sem hann átti að sjálfsögðu engan þátt í en vonum að hann verði ekki svekktur með þetta sem ég held að hann verði ekki. Þetta er ekki allt uppspuni frá rótum og það er einhver sannleikur í þessu og þeir sem þekkja hann vita hvað er satt og ekki. En það mesta er þó uppspuni.

Gummó er kóngurinn !!!!
:: Hjalmar 7/10/2003 [+] :: ::
...
:: miðvikudagur, júlí 09, 2003 ::
Já hæ

Jæja við töpuðum á mánudaginn fyrir AIK 2-0 og það var bara mjög slæmt í alla staði. Ég spilaði ekkert og fékk meira að segja sitja á rassgatinu upp í stúku sem 17 maður !! Get ekki annað en lýst furðu minni með þessa ákvörðun þjálfarans. Í þeim fjórum leikjum sem ég spilaði unnum við 3 og eitt jafntefli og fengum á okkur eitt mark. Er samt ekki að segja að það sé mér að þakka en einhvern þátt hef ég átt í þessum úrslitum en það hefur greinilega ekki verið nóg og ég ekki náð að sannfæra þjálfarann. Maðurinn sem tók mína stöðu var svo rekinn útaf. Spennandi að sjá hvort maður fær tækifæri í næsta leik !!??

Annars erum við í smá fríi núna og það eru heilir 4 dagar og maður er bara að taka því rólega og reyna að hugsa ekki um fótbolta sem er reyndar frekar erfitt. Þannig að nú fer maður bara og sólar sig aðeins og reynir að fá smá brúnku í kroppinn og tekur með sér bók eða eitthvað og slappar af.

Kef tók Njarðvík sannfærandi 5-2 í derbyinu og í hinu derbyinu á Seyðis tapaði Höttur fyrir Huginn sem er mjög dapurt. Sáttur við að Kewelinn ætli að ganga til liðs við Liverpool ;)

Eftir að hinni geysivinsælu holu Orminum var lokað hafa menn heldur betur tekið við sér á Héraðinu og nú opnar bara bar næstum því í hverri viku. Spurning hvernig þetta endar allt saman. Skál !!!

Meira hef ég ekki að segja að sinni eiginlega. Hafið þið það gott.
:: Hjalmar 7/09/2003 [+] :: ::
...
:: sunnudagur, júlí 06, 2003 ::
Já hæ

Ekki hefur nú gerst neitt merkilegt síðan ég skrifaði síðast. Það hefur bara verið æft og svo ekki gert neitt af viti þar á milli. Leikur á morgun við AIK og það verður eflaust hörkuleikur þar sem við ætlum að sjálfsögðu að vinna. Var reyndar að koma af hinni ÓTRÚLEGU mynd Charlies Angels og hún fær nú ekki mörg rassgöt en það var samt nóg af þeim í þessari mynd. Hér með ætla ég að lýsa því yfir að Cameron Diaz er með fallegasta afturenda sem ég hef séð. (mamma ef þú lest þetta þá vona ég að þú sért ekki hneyksluð ;) En allavega þá fær hún (Cameron Diaz) fimm afturenda af fimm mögulegum.
Mínir menn í Hetti gerðu góða ferð á Djúpavog og sigruðu 5-0 og vonandi að þeir svífi nú ekki á einhverjum skýjum eftir það því það er nóg af leikjum eftir og hörð barátta. Þeir eru búnir að fá þrjá "Bauna" plús "gamlan" Sólvallamann Hafþór Atla að nafni og þetta styrkir þá eflaust.
Keflvíkingar eru þessa stundina að spila við Njarðvík í derby leiknum og ég held að Keflavík sé að vinna og það er nú eins gott fyrir þá.
Annars er það nú eiginlega ekki meira að sinni en eftir leikinn eigum við heila fjóra daga í frí og ég hef ákveðið að eyða þeim hér í Svíþjóð þar sem þetta er of stuttur tími til að koma heim, sorry my friends.
Þangað til næst hej do

P.s endilega kommentið þið mitt álit á afturenda valinu og komið með betri uppástungur ef þið hafið þær þá !!
:: Hjalmar 7/06/2003 [+] :: ::
...
:: þriðjudagur, júlí 01, 2003 ::
Já sælt veri fólkið

Í gær vannst mikilvægur sigur gegn botnliði deildarinnar Enköping á útivelli. Við unnum 1-0 og við skríðum aðeins upp töfluna með þessum sigri. Þetta var nú engin stórleikur af okkar hálfu en við áttum þó miklu hættulegri færi en þeir þó svo að spilið hjá okkur væri ekki upp á marga fiska. Mikið af meiðslum er í herbúðum okkar og það er slæmt en það mikilvægasta er að þeir sem koma inn standa sig með miklum sóma og við berjumst hver fyrir annan og það er mikill styrkur að mínu mati. Ég var svona lala í fyrri hálfleik en tók mig á í þeim síðari og var svooooo nálægt því að skora þegar ég skaut í stöngina og út en maður skorar bara þegar á því þarf að halda ;) djöfulinn samt !!!
Næsti leikur er gegn AIK á heimavelli og það verður hörkuleikur vægast sagt. Við höfum fengið tvo leikmenn til viðbótar í leikmannahópinn og þeir eru orðnir löglegir fyrir næsta leik. Nú er bara að taka þessa Stokkhólmara og flengja þá og þá erum við á góðri siglingu.
Höttur á svo leik við Neista í kvöld og vonandi gera þeir góða ferð niður á Djúpavog og sigra þar. Með liði Neista spila minn æskuvinur hinum megin við götuna hann Sindri sem stendur í búrinu, Ingi frændi og minn frábæri vinur Gummó sem þó hefur ekki spilað enn vegna þrálátra meiðsla en það þýðir þó ekki að ég haldi með þeim því ég held að SJÁLFSÖGÐU með mínum ástkæra móðurklúbb !!

Þangað til næst skjótum við ekki í stöngina heldur í markið ;)
:: Hjalmar 7/01/2003 [+] :: ::
...
:: laugardagur, júní 28, 2003 ::
Mr Andersson

Já ég veit að það eru allir löngu búnir að sjá Matrix Reloaded en loksins drullaðist ég nú á þessa mynd í gærkvöldi með félaga mínum í liðinu. Þetta er flott mynd en maður verður stundum bara óþolinmóður þegar þeir eru að babla eitthvað um hvernig þetta er og varð allt saman til og bla bla bla. Ég vildi bara sjá fólk berjast og slást því bardagasenurnar eru ótrúlega flottar í þessari mynd. Þessi mynd fær 4 bardaga af fimm bardögum mögulegum og býð ég spenntur eftir framhaldinu í þessari vitleysu allri.
Eftir mjög rólega æfingu í gær fórum við nokkrir út við hafið að reyna ná okkur í smá sól í kroppinn og við mættum með handklæðið og stuttbuxurnar. Það er þannig hér að fólk fer út við sjóinn og leggur sig í klettana og sleikir sólina og stekkur í sjóinn sem er alveg ógeðslega kaldur og við lögðum ekki í það á þessum degi. Við vorum búnir að vera þarna í svona einn og hálfan tíma þegar það kom bara þetta risaský sem fór bara ekki og þar með var sú ferð eyðilögð :(
Höttur vann Leikni á Villapark og vonandi eru þeir komnir á sigurbraut aftur enn riðillinn er jafn og spennandi þar sem allir vinna alla en vonandi spýta mínir menn í lófana og vinna þetta !!
Veðrið hefur batnað heilmikið hérna og nú fer hitastigið bara ekki niður fyrir 20 stig og það er ekkert nema gott um það að segja.

Þangað til næst hafið það gott
P.s skrifið endilega í gestabókina þegar þið kíkið við hérna
:: Hjalmar 6/28/2003 [+] :: ::
...

This page is powered by Blogger. Isn't yours?